fbpx
Þriðjudagur 20.ágúst 2024
Pressan

Sonur rokkgoðsagnar grunaður um hrottaleg morð

Pressan
Þriðjudaginn 20. ágúst 2024 16:30

Brent Clifford er grunaður um morðin.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan í Placer-sýslu í Kaliforníu í Bandaríkjunum hefur handtekið 55 ára karlmann vegna gruns um að hafa framið tvö morð fyrir skemmstu. Maðurinn sem um ræðir heitir Brent Clifford og er hann sonur eins af stofnendum Creedence Clearwater Revival, trommuleikarans Doug Clifford.

Brent, sem er 55 ára, er grunaður um að hafa myrt kærustuna sína, hina 48 ára gömlu Patriciu Portella-Wright. Tilkynnt var um hvarf hennar þann 9. ágúst síðastliðinn eftir að hún skilaði sér ekki til vinnu. Sást síðast til hennar nokkrum dögum áður í Reno í Nevada.

Tveimur dögum síðar, eða þann 11. ágúst, fannst lík 68 ára karlmanns, William F. Andrews, á heimili hans í Reno og hafði hann verið skotinn til bana.

Lögreglu grunaði strax að málin tengdust og hófst í kjölfarið leit að Brent sem talinn var vera á bifreið Andrews. Það reyndist á rökum reist og var hann handtekinn í Plumas-sýslu í Kaliforníu. Það var svo daginn eftir handtökuna að lík Patriciu fannst og hafði hún verið stungin til bana.

Lögreglu grunar að Brent hafi myrt bæði Patricu og Andrews en ekki liggur ljóst fyrir hvernig þau tengdust eða hvaða ástæður liggja að baki morðunum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Konur skýra frá vandræðalegustu kynlífsreynslunni – Notaði vasaljós til að sjá hvar hann ætti að setja typpið inn

Konur skýra frá vandræðalegustu kynlífsreynslunni – Notaði vasaljós til að sjá hvar hann ætti að setja typpið inn
Pressan
Í gær

Rúmlega 500 ára gömul ráðgáta sögð líklega loksins hafa verið leyst

Rúmlega 500 ára gömul ráðgáta sögð líklega loksins hafa verið leyst
Pressan
Fyrir 3 dögum

Dularfullt neðanjarðarmannvirki vekur undrun

Dularfullt neðanjarðarmannvirki vekur undrun
Pressan
Fyrir 3 dögum

Glugga- eða gangsæti? – Valið getur skipt máli fyrir heilsuna

Glugga- eða gangsæti? – Valið getur skipt máli fyrir heilsuna
Pressan
Fyrir 4 dögum

Lést eftir að hafa óvart hellt þvottaefni út á morgunkornið í stað mjólkur

Lést eftir að hafa óvart hellt þvottaefni út á morgunkornið í stað mjólkur
Pressan
Fyrir 4 dögum

Fokvondur frúnni og hótaði að keyra með börnin fram af kletti – „Ég fer til helvítis til að bíða eftir þér“

Fokvondur frúnni og hótaði að keyra með börnin fram af kletti – „Ég fer til helvítis til að bíða eftir þér“