fbpx
Mánudagur 19.ágúst 2024
Pressan

Gerðu óhugnanlega uppgötvun í garði eiginmannsins

Pressan
Mánudaginn 19. ágúst 2024 18:30

Dee Warner hvarf árið 2021. Eiginmaður hennar er grunaður um að hafa myrt hana.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögregluyfirvöld í Michigan í Bandaríkjunum hafa fundið líkamsleifar sem grunur leikur á að gætu tilheyrt Dee Warner, konu sem ekkert hefur spurst til síðan í apríl 2021.

Eiginmaður DeeDale Warner, hefur lengi verið grunaður um aðild að hvarfinu en hann hefur staðfastlega neitað sök. Þó að ekkert lík hefði fundist var hann ákærður fyrir morð í fyrra.

Ríkislögreglan í Michigan tilkynnti á blaðamannafundi í gær að líkamsleifar hefðu fundist í garðinum við heimili Dale í Lenawee-sýslu. Ekki er búið að bera kennsl á líkamsleifarnar og mun DNA-rannsókn taka einhvern tíma áður en það fæst staðfest um hvern ræðir.

Það voru aðstandendur Dee, sem var 52 ára, sem tilkynntu um hvarf hennar vorið 2021. Ónafngreindir einstaklingar tengdir henni segja við bandaríska fjölmiðla að líkamsleifarnar hafi fundist í gömlum geymslutanki fyrir fljótandi ammóníak. Þykir það gefa ýmislegt til kynna.

Dale hefur setið í gæsluvarðhaldi síðustu mánuði og munu réttarhöld í máli hans hefjast þann 4. september næstkomandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Telja að Neanderdalsmenn hafi í raun ekki dáið út

Telja að Neanderdalsmenn hafi í raun ekki dáið út
Pressan
Fyrir 2 dögum

Afhjúpar leyndarmálið um hvernig „evrópska erfðamengið“ varð til

Afhjúpar leyndarmálið um hvernig „evrópska erfðamengið“ varð til
Pressan
Fyrir 3 dögum

Lést eftir að hafa óvart hellt þvottaefni út á morgunkornið í stað mjólkur

Lést eftir að hafa óvart hellt þvottaefni út á morgunkornið í stað mjólkur
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fokvondur frúnni og hótaði að keyra með börnin fram af kletti – „Ég fer til helvítis til að bíða eftir þér“

Fokvondur frúnni og hótaði að keyra með börnin fram af kletti – „Ég fer til helvítis til að bíða eftir þér“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Coca-Cola með nýtt og ótrúlegt bragð – Oreo-Cola

Coca-Cola með nýtt og ótrúlegt bragð – Oreo-Cola
Pressan
Fyrir 4 dögum

Óvænt aukaverkun af notkun Wegovy og Ozempic – Aukin kynhvöt

Óvænt aukaverkun af notkun Wegovy og Ozempic – Aukin kynhvöt