Marca skýrir frá þessu og segir að mörg börn hafi orðið vitni að þessum hryllingi.
Lögreglan hóf strax mikla leit að morðingjanum sem náði að flýja af vettvangi. Ekki er vitað af hverju maðurinn myrti drenginn.
OK Diario segir að talið sé að morðinginn sé 16-17 ára gamall.
Viðbragðsaðilar komu fljótt á vettvang og sjúkraþyrla lenti skömmu eftir níðingsverkið. En því miður tókst ekki að bjarga lífi drengsins.