The Guardian skýrir frá þessu og segir að á síðasta ári hafi Alex Chalk, þáverandi dómsmálaráðherra, afnumið reglugerð sem kvað á um að þeir sem eru ranglega dæmdir þurfi að greiða fyrir uppihald í fangelsi.
En nú segja stjórnvöld að þeir sem hafa nú þegar fengið greiddar bætur vegna slíkra mála geti ekki krafist endurgreiðslu á því sem var dregið af þeim fyrir „fæði og húsnæði“.
Einn þeirra er Paul Blackburn sem sat saklaus í fangelsi í 25 ár. Hann fékk greiddar bætur árið 2011 vegna þessa en frá þeim var búið að draga 100.000 pund, sem svarar til tæplega 18 milljóna króna á núverandi gengi, fyrir „fæði og húsnæði“. Var útreikningurinn byggður á hvað fæði og húsnæði hefði kostað hann ef hann hefði verið frjáls maður í þessi 25 ár.
Blackburn sagði í samtali við BBC4 að þessi „útreikningur“ hefði verið byggður á þeirri forsendu að hann hefði ekki unnið neitt öll þessi ár ef hann hefði verið frjáls maður og að hann hefði þar af leiðandi fengið greiddar bætur af einhverju tagi. Þetta sagði hann vera „tvöfalda refsingu“.