Shanon glímdi á árum áður við áfengis- og fíkniefnavanda og lét hún dætur sínar, Simone og yngri systur hennar, Adriu, í hendur foreldra sinna sem sáu um uppeldi systranna.
Shanon ræddi stöðuna í viðtali við Daily Mail þar sem hún sagðist vonast til þess að fá tækifæri til að biðja dóttur sína afsökunar á afskiptaleysi hennar þegar hún var barn.
Hún segir að hún tali endrum og eins við Adriu en afar sjaldan við Simone. „Ég vil fá tækifæri til að biðja hana afsökunar. Ekki dæma mig fyrir mína fortíð. Horfum fram á veginn. Ég bíð eftir þessu tækifæri en bíð eftir að hún komi til mín. Ég þarf að sýna þolinmæði.“
Simone Biles er af mörgum talin einn besti íþróttamaður sögunnar en hún hefur unnið til ellefu verðlauna á Ólympíuleikunum, þar af sjö gullverðlaun.
Í viðtalinu segist Shanon hafa fylgst með dóttur sinni á nýafstöðnum Ólympíuleikum þar sem Simone vann til fjögurra verðlauna. Það gerði hún á heimili sínu í Columbus í Ohio þar sem Simone og Adria bjuggu áður en þær flökkuðu á milli fósturheimila. Það gerðu systurnar uns afi þeirra og amma tóku þær undir sinn verndarvæng í Texas.
Shanon segist hafa fundið fyrir stolti þegar hún horfði á dóttur sína þrátt fyrir að þær séu í litlu sem engu sambandi. „Það sem ég heyri frá Simone heyri ég frá föður mínum. Ég tala oft við pabba minn og við erum í góðu sambandi. Hann heldur mér upplýstum um hana.“
Shanon segist vera edrú í dag og starfar hún við afgreiðslustörf í verslun sem heitir Save A Lot. „Ég er ekki sama manneskja og ég var,“ segir hún. Bætir hún við að hún vilji segja Simone og yngri systur hennar að hún elski þær og sé stolt af þeim.