Saksóknarar tilkynntu þetta í gær og um leið voru þúsundir blaðsíðna af málsgögnum gerðar opinberar. Pilturinn sem var skotinn til bana hét Damian Haglund og mætti hann í skólann þennan dag vopnaður loftriffli sem líktist mjög hefðbundnum riffli.
Samkvæmt gögnunum sem gerð voru opinber hafði Haglund lagt á ráðin um að framkvæma voðaverk í skólanum. Ætlaði hann sér að brenna niður bókasafn skólans og ráðast á „vinsælu krakkana“ áður en lögreglumenn myndu skjóta hann.
Daginn sem Haglund var skotinn mætti hann vopnaður loftriffli en samnemendur hans vörnuðu honum inngöngu með því að læsa útidyrahurðinni. Lögreglumenn voru fljótir á vettvang og hunsaði Haglund ítrekaðar beiðnir þeirra um að leggja frá sér vopnið. Fór svo að hann var skotinn þegar hann gerði sig líklegan til að miða byssunni á lögreglumenn.
Við rannsókn málsins kom í ljós að Haglund hafði skrifað bréf til lögreglumannanna sem skutu hann áður en hann hélt að heiman. „Hæ lögreglumenn. Til lögregluþjónsins sem neyðist til að skjóta mig: Fyrirgefðu, þetta er ekki þér að kenna. Ekki gleyma því.“ Þá skildi hann eftir sams konar bréf sem stílað var á móður hans: „Elsku mamma, þetta var ekki þér að kenna. Haltu áfram að lifa lífinu, DH.“
Haglund hélt úti reikningum á samfélagsmiðlum þar sem hann opinberaði að hann væri heltekinn af skelfilegum skotárásum sem framdar hafa verið í bandarískum skólum í gegnum árin. Nefndi hann meðal annars árásirnar í Columbine árið 1999 og Sandy Hook árið 2012.