Tilkynnt var um valið í vikunni og hefur Walz, sem er sextugur fyrrverandi kennari og núverandi ríkisstjóri Minnesota, verið nokkuð í sviðsljósinu síðan.
Meðal þess sem fjölmiðlar hafa grafið upp um Walz er sú staðreynd að hann var einu sinni tekinn fyrir ölvunarakstur og hraðakstur.
Þetta var árið 1995 þegar Walz var 31 árs kennari, búsettur í Nebraska, og hafði hann verið heima hjá vini sínum að horfa á fótboltaleik.
Lögregla stöðvaði bifreið hans þar sem hann ók langt yfir leyfilegum hámarkshraða, eða á 150 kílómetra hraða þar sem leyfður hámarkshraði var 90 kílómetrar á klukkustund. Lögreglumaðurinn sem stöðvaði hann fann áfengislykt af honum og reyndist hann vera ölvaður undir stýri.
Walz ræddi þetta í viðtali við Star Tribune árið 2018 og sagði hann að atvikið hefði verið einskonar vakning fyrir hann. Eftir að hann var stöðvaður ákvað hann að smakka ekki áfengi framar og hefur hann staðið við það í þau 30 ár sem eru liðin.
Walz var ákærður vegna málsins og játaði hann sök fyrir dómi. Hann var sviptur ökuréttindum í 90 daga og gert að greiða 200 dollara í sekt, auk málskostnaðar. Þá bauðst hann til að segja starfi sínu lausu sem kennari við Alliance-gagnfræðaskólann í Nebraska eftir atvikið, en skólastjórinn talaði hann ofan af því.