Eins og gefur að skilja hafði hún áhyggjur af þessu og pantaði tíma hjá heimilislækninum sínum. Hann sagði að líklega væru þetta eftirköst af COVID-19 en hún hafði verið með COVID-19 nokkrum mánuðum áður.
Joanne notaði verkjalyf til að lina þjáningarnar en næsta árið bættust fleiri sjúkdómseinkenni við og hún leitaði því aftur til læknis.
„Augun urðu blóðsprengd. Fæturnir og ökklarnir voru stokkbólgnir. Húðin varð gulleit því nýrun fóru að gefa sig. Almennt séð leið mér ekki vel,“ sagði hún.
Ári eftir að fyrstu einkennin gerðu vart við sig, byrjaði hún að kasta upp blóði og var hún þá lögð inn á sjúkrahús. Þar var henni gefið bólgueyðandi lyf en það eyðilagði slímhúðina.
Læknar komust síðan að því að bólgurnar í fótunum og ökklunum og gula húðin voru vegna nýrnavandamála. Hún var flutt á sérhæft nýrnasjúkrahús. Þar var hún greind með „toxic shock syndrome“
Daginn áður en það átti að útskrifa hana hrundi hún niður vegna hjartavandamála. Það var þá fyrst sem hún fékk að vita hvað það var sem hrjáði hana.
Hún greindist með „amyloidose“ en það er sjaldgæfur sjúkdómur sem kemur upp þegar prótín, sem nefnist amyloidose, safnast upp í líkamanum. Það getur haft áhrif á líffæri á borð við hjarta, nýru, lifur, taugar og meltingarkerfið. Þetta er ólæknandi sjúkdómur.
En ekki nóg með að Joanne væri með amyloidose, því hún var einnig með blóðkrabbamein og varð því að gangast undir lyfjameðferð.
Eins og gefur að skilja var þetta mikið áfall fyrir þessa bresku konu en hremmingum hennar var ekki þar með lokið því sex mánuðum síðar kom í ljós að hún þurfti að gangast undir hjartaígræðslu um leið og hjarta væri í boði. Hún varð að liggja inni á sjúkrahúsi mánuðum saman en í mars á síðasta ári fékk hún nýtt hjarta og gekk aðgerðin vel. En í nóvember kom í ljós að líkaminn var farinn að hafna hjartanu og varð hún að leggjast inn á sjúkrahús á nýjan leik til að fá lyf til að reyna að vinna gegn höfnuninni. Það tókst og var hún útskrifuð tveimur dögum fyrir jól.
En hremmingum hennar var ekki þar með lokið því þann 4. janúar missti hún meðvitund heima hjá sér. Hún hafði fengið inflúensu sem lagðist illa á hana þar sem ónæmiskerfi hennar var veikburða eftir allar fyrri hremmingarnar. Hún var lögð inn á gjörgæsludeild þar sem hún var næstu tvær vikurnar.