Á samfélagsmiðlum heldur fólk þeirri mýtu fram að sólarvörn sé skaðleg. Þetta hefur náð til barna og ungmenna og í Noregi kveður svo rammt að þessu að börn og ungmenni vilja ekki nota sólarvörn og maka þess í stað smjöri eða matarolíu á sig.
B.T. hefur eftir Fabiansen að allar rannsóknir sýni að það sé næstum alveg sama hvaða sólarvörn sé notuð, það sé bara að smyrja henni á sig.
Hvað varðar þetta fyrrnefnda trend þá sagði hún að þetta sýni hversu góður vettvangur samfélagsmiðlar séu til að dreifa röngum upplýsingum.
Dæmi um þetta má sjá hjá áhrifavaldinum Gubba Homestead.
I don’t wear sunscreen, and I never will.
We blame the sun for cancer when we should be blaming our diets.
But if we cleaned up our diets, how would Big Food and Big Pharma make their money?
Sunscreen and a poor diet will make you sick.
Sick people = $$$
Don’t be a pawn. pic.twitter.com/bOa2aNSBqE
— Gubba Homestead (@GubbaHomestead) March 28, 2024
„Þetta ber þess vitni að fólk hefur ekki þekkingu á þessu. Annars myndi það ekki trúa þessu. Það eru engar sannanir fyrir að sólarvörn valdi krabbameini. Þvert á móti getur maður sagt,“ sagði Fabiansen.
Þessar efasemdir um sólarvörn herja beggja megin Atlantshafs og í Bandaríkjunum sýndi könnun fram á að 14% fólks yngra en 35 ára, telur að dagleg notkun á sólarvörn valdi meiri skaða en sólin.