AFP segir að nú síðast hafi neyðarástandi verið lýst yfir í Lesótó vegna þurrka en áður var búið að gera slíkt hið sama í Malaví, Namibíu, Sambíu og Simbabve.
Svo gæti farið að neyðarástandi verði einnig lýst yfir fljótlega í Angóla og Mósambík.
Castro sagði að maísinn sé algjörlega þurr á svæðinu og hafi ekki vaxið neitt. Fólk eigi því í vandræðum við að brauðfæða sig og fjölskyldur sínar.
Þurrkarnir hafa eyðilagt 70% af uppskerunni í Sambíu og 80% í Simbabve.