Rannsóknir á fingraförum meintra geimvera frá Perú virðast benda til þess að lífverurnar séu ekki mennskar. Þetta kemur fram í umfjöllun Daily Mail um hinar umdeildu geimverur sem heimsbyggðin hefur klórað sér í kollinum yfir undanfarið árið.
Þann 13. september síðastliðinn steig blaðamaðurinn Jaime Maussan fram og sýndi mexíkóskri þingnefnd tvær perúvískar múmíur sem hann hélt fram að væru geimverur. Málið vakti talsverða athygli á heimsvísu, enda margir áhugasamir um heimsóknir frá öðrum hnöttum. Fljótlega stigu vísindamenn fram og sögðu að múmíurnar, sem fundust að sögn Maussan við Nazca-línurnar í Perú, væru vissulega ófalsaðar en vildu þó ekki staðfesta þær fullyrðingar blaðamannsins að um geimverur hafi verið að ræða.
Í nýlegri umfjöllun Daily Mail heldur lögfræðingurinn og saksóknarinn Joshua McDowell því fram að hann hafi farið til Perú og rannsakað fingraför geimveranna með þremur bandarískum sérfræðingum. Niðurstöðurnar væru þær að allt benti til þess að ekki væri um mennskar verur að ræða.
McDowell vék sér þó undan því að fullyrða að um geimverur væri að ræða. Hann sagði rannsóknina á því vera í fullum gangi og að svo stöddu vildi hann ekki slá neinu föstu.
Talsvert hefur þó gengið á milli þeirra sem telja að þarna sé komin fyrsta sannaða tilvst geimvera og þeirra sem eru fullir efasemda. Menningarmálaráðuneyti Perú hefur til dæmis tvisvar sent frá sér yfirlýsingu um að geimverunar séu falsaðar og þá lét vísindamaðurinn, , Flavio Estrada, hafa eftir sér að geimverurnar væru „dúkkur“.