Maðurinn var einn níu manna sem hópnauðguðu 15 ára stúlku í Hamborg fjórum árum áður.
Maðurinn fékk aðeins skilorðsbundinn dóm fyrir níðingsverkið vegna ungs aldurs. Hann sat því aldrei í fangelsi að sögn New Zealand Herald.
Konan, sem er kölluðu Maja R. í þýskum fjölmiðlum, þekkti hann ekki en var meðal 140 manns sem sendu honum niðrandi skilaboð á WhatsApp eftir að nafni hans og númeri var lekið á Snapchat.
„Skammast þú þín ekki þegar þú horfir í spegil?“ skrifaði hún og bætti síðan við að hann sé „viðbjóðslegt nauðgarasvín“ og „viðbjóðslegt frík“.
Hún skrifaði einnig að hann gæti sig hvergi hreyft án þess að sparkað yrði í andlit hans og bætti síðan við: „Vonum bara að þú verðir læstur inni.“
Maja R. sagðist hafa sent skilaboðin án þess að hugsa sig um. Hún bað manninn síðan afsökunar.
Maðurinn var einn níu unglingspilta sem hópnauðguðu 15 ára stúlku klukkustundum saman í september 2020.
Átta piltanna sluppu við fangelsisdóm vegna ungs aldurs en sá níundi, sem er íranskur, játaði sök og varpaði þeirri spurningu fram fyrir dómi hvaða karlmaður vildi ekki taka þátt í nauðgun.
Maja R. var dæmd til þess að sitja í fangelsi eina helgi.