Nýlega steig augnlæknir einn fram og gerði út af við langlífa mýtu sem margir foreldrar hafa notað þegar þeim hefur blöskrað hversu miklum tíma börnin þeirra eyða við skjáinn, sjónvarpsskjá, tölvuskjá eða símaskjá. Hafa mörg börn fengið að heyra að augu þeirra geti orðið ferköntuð ef þau eyða of miklum tíma við skjáinn.
Eftir því sem Nina Jacobsen, augnlæknir, segir þá eru engar sannanir fyrir því að það sé slæmt fyrir augun þegar við sitjum klukkustundum saman við skjáinn. „Augun geta orðið þurr, því maður blikkar sjaldnar þegar maður situr við skjá. Að öðru leyti er ekki mikil hætta sem fylgir þessu,“ sagði hún að sögn B.T.
Það getur sem sagt orðið pirringur í augunum, þig getur sviðið í þau, sjónin getur orðið þokukennd og maður getur orðið ljósfælin(n) en þetta á aðeins við á meðan setið er við skjáinn að sögn Nina. Þá sé bara að taka sér hlé frá skjánum.