Þann 6. júlí hringdi hin 36 ára gamla Sonya Massey í neyðarlínuna í Illinois. Hún óttaðist að óprúttinn aðili hefði brotist inn á heimili hennar og óskaði eftir lögregluaðstoð. Það reyndust mistök en Sonya lét í kjölfarið í lífið og nú hefur lögreglumaður verið ákærður fyrir morð hennar.
Lögreglumaðurinn, Sean Crayson, var sendur ásamt kollega sínum að heimili Sonyu klukkan 00:50. Ekki liggur fyrir hvað átti sér nákvæmlega stað í kjölfarið í Crayson endaði með að skjóta Sonyu til bana inni á hennar eigin heimili. Sonya var óvopnuð, hrædd og taldi að lögreglan væri komin til að hjálpa henni.
Rannsókn lögreglu hefur leitt í ljós að Crayson hafði enga ástæðu til að grípa til banvænnar valdbeitingar. Athæfið var ekki í samræmi við þá þjálfun sem hann hefur hlotið sem lögreglumaður og ekki í samræmi við verklagsreglur. Honum er nú haldið í gæsluvarðhaldi og hefur verið vikið frá störfum.
Lögmaður fjölskyldu Sonyu segir málið átakalegt. Sonya treysti lögreglu til að vernda sig, hafði ekkert unnið sér til sakar og var óvopnuð. „Erfitt að ímynda sér hvernig kona, sem hringir í lögreglu því hún óttast húsbrot, endar með því að vera skotin… af lögreglunni inni á hennar eigin heimili.“
Fjölskylda Sonyu hefur fengið að sjá upptökur úr búkmyndavélum Crayson og kollega hans og stendur til að birta þær opinberlega eftir helgi.
Málið hefur vakið óhug og reiði en Sonya var svört kona á meðan Crayson er hvítur karlmaður.