Í ystu lögum sólkerfisins, svo langt frá hinum þekktu plánetum þess að erfitt er að greina mun á sólinni og öðrum stjörnum, er hugsanlegt að stór íspláneta leynist í myrkrinu og bíði þess eins að við finnum hana.
Sá dagur gæti runnið upp fyrr en síðar því á næsta ári verður byrjað að nota nýjan og gríðarlega fullkominn stjörnusjónauka við leitina.
Það eru átta þekktar plánetur í sólkerfinu: Merkúr, Venus, jörðin, Mars, Júpíter, Satúrnus, Úranus og Neptúnus. En síðasta tæpa áratuginn hafi margir stjörnufræðingar tekið undir þá hugmynd að níunda pláneta leynist í ystu lögum sólkerfisins.
Telja þeir að Pláneta níu, ef hún er til, sé gas- eða ísrisi og sé milljörðum kílómetra fjær sólinni en hinar pláneturnar. Ef hún er virkilega til þá gætum við þurft að endurmeta skilning okkar á uppruna sólkerfisins og þróun þess.