Innri kjarninn er á stærð við tunglið og samanstendur af járni og nikkel á 4.800 km dýpi. Í kringum innri kjarnann er ytri kjarninn sem er mjög heitt lag af bráðnuðum málmum. Þrátt fyrir að öll jörðin snúist þá snýst innri kjarninn á aðeins öðrum hraða en möttullinn og jarðskorpan.
Frá því að vísindamenn byrjuðu að kortleggja neðri lög jarðarinnar með nákvæmum jarðskjálftaskráningum fyrir 40 árum, þá hefur innri kjarninn snúist aðeins hægar en möttullinn og jarðskorpan.
En í nýrri rannsókn, sem hefur verið birt í vísindaritinu Nature, kemur fram að frá 2010 hafi innri kjarninn verið að hægja á sér.
Ef þessi þróun heldur áfram getur aðdráttarafl innri kjarnans valdið því að ytri lögin fari að snúast aðeins hægar og það myndi breyta lengd sólarhringsins.
En það er óþarfi að hafa áhyggjur af því, því þessi breyting yrði aðeins mæld í þúsundasta hluta úr sekúndu og erfitt að sjá að nokkur myndi taka eftir því. Það verður því engin þörf á að endurstilla klukkurnar okkar eða dagatöl.