Vigano var sendiherra Páfagarðs í Bandaríkjunum frá 2011 til 2016 en hann hefur verið í felum frá 2018. Þá sakaði hann Frans páfa um að hafa vitað um kynferðisbrot Theodore McCarrick, kardinála í Bandaríkjunum, og að hafa ekkert aðhafst vegna þeirra. Þessu hefur Páfagarður neitað.
En Vigano lét ekki þar við sitja og sagði páfann vera „falsspámann“ og „þjón djöfulsins“ og hvatti hann til að segja af sér embætti.
Vigaon, sem er 83 ára, er ofuríhaldssamur og hefur byggt upp sinn eiginn áhangendahóp eftir að hann hellti sér út í samsæriskenningar varðandi heimsfaraldur kórónuveirunnar og gagnrýndi tilraunir kaþólsku kirkjunnar til að nútímavæðast.
Páfagarður tilkynnti um bannfæringuna á föstudaginn.