Þetta endaði með skelfingu því flugeldarnir sprungu með þeim afleiðingum að McGrew lést samstundis.
NYPost segir að hann hafi staðið fyrir flugeldasýningu fyrir nágranna sína í Summerville í Suður-Karólínu að kvöldi þjóðhátíðardagsins. Hann hafi síðan ætlað að sýna sig fyrir þeim með því að setja flugelda ofan á höfuð sér.
Vitni sögðu að fjölskylda hans hafi grátbeðið hann um að gera þetta ekki en hann hafi ekki hlustað á þær bænir.
Hann var mjög ölvaður þegar þetta gerðist.