New York Post skýrir frá þessu.
Leikurinn sem um ræðir, Senior Assassin, hefur notið þó nokkurra vinsælda á samfélagsmiðlum vestan hafs en hann felur í sér að klukka aðra með vatnsbyssum, baunabyssum eða gelbyssum sem skjóta mjúkum vökvafylltum kúlum. Er þetta jafnan tekið upp og birt á samfélagsmiðlum eins og TikTok, Instagram eða YouTube.
Þann 11. maí síðastliðinn var hinn átján ára Anakin Zehring á ferðinni í bíl með tveimur vinum sínum fyrir utan verslun Wailmart í Goddard í Kansas. Þeir komu auga á ungt par sem var á leið inn í verslunina og ákváðu félagarnir að klukka parið. Óku þeir að þeim og skutu í átt til þeirra með gelbyssum.
Parinu var eðlilega brugðið og hafði stúlkan samband símleiðis við föður sinn, Ruben Marcus Contreras, sem var ekki lengi á vettvang. Lýsti stúlkan því sem hafði gerst og kvaðst hún ekki þekkja deili á ungu mönnunum sem skutu á þau.
Stúlkan sá hvar piltarnir gengu inn í verslun Dairy Queen skammt frá og þegar faðir hennar kom á vettvang benti hún honum á hvert þeir fóru. Faðirinn ók bifreið sinni þangað og átti hann í orðaskiptum við drengina áður en hann dró upp skotvopn og skaut að bílnum.
Ein kúla hafnaði í Zehring og slasaðist hann lífshættulega í skotárásinni. Fór kúlan í gegnum kvið hans og tók í sundur mænuna með þeim afleiðingum að Zehring er núna lamaður fyrir neðan mitti.
Contreras var handtekinn þann 15. Maí síðastliðinn og hefur hann verið ákærður fyrir tilraun til manndráps af fyrstu gráðu.
Í frétt New York Post kemur fram að lögregla hafi fyrr á þessu ári varað við leiknum. Sagði lögregla að hætta væri á því að einhver héldi að um alvöru skotvopn og afleiðingarnar gætu orðið banvænar eins og næstum því gerðist í Kansas þann 11. maí síðastliðinn.