fbpx
Þriðjudagur 02.júlí 2024
Pressan

Örlagasaga Fílamannsins – Álitinn vanskapningur – Dreymdi um það eitt að lifa lífinu eins og aðrir

Pressan
Sunnudaginn 30. júní 2024 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fílamaðurinn Joseph Carey Merrick.

Nafnið Joseph Carey Merrick hringir líklegast ekki mörgum bjöllum hjá fólki en ef því er sagt að þetta hafi verið raunverulegt nafn „Fílamannsins“ svokallaða vita flestir um hvern er verið að tala. Merrick varð heimsþekktur á síðari hluta nítjándu aldar vegna mikillar bæklunar sem hrjáði hann. Hvarvetna sem hann kom vakti hann mikla athygli og um hríð var hann „sýningargripur“ í fjölleikahúsum og álíka stöðum. En þrátt fyrir mikla líkamlega fötlun var Merrick eins og flestir aðrir í kollinum og átti sér sína drauma og vonir. Stærsti draumur hans var að geta lifað lífinu eins og aðrir. Það varð honum að aldurtila þegar hann var aðeins 27 ára.

Saga Merrick hófst á köldum og vindasömum þriðjudegi þann 5. ágúst 1862. Þá fæddist heilbrigður drengur í lítilli íbúð á Lee Street 50 í Leicester á Englandi. Móðir hans var Mary Jane Merrick. En því miður var drengurinn ekki heilbrigður lengi. Þegar hann var tveggja ára byrjaði líkamleg bæklun að gera vart við sig hjá honum. Til dæmis óx hægri handleggur hans mikið og var ekki í neinu hlutfalli við restina af líkamanum. Kinnar og varir bólgnuðu upp og því átti Merrick litli erfitt með mál. Þegar hann var fimm ára datt hann illa og meiddist á mjöðm. Þetta hafði ævarandi áhrif á hann því hann þurfti að ganga við staf eftir þetta.

Merrick skrifaði ævisögu sína 1884, þá aðeins 22 ára að aldri, þar sem hann sagði að ástæðuna fyrir bækluninni mætti rekja til þess að móðir hans hefði eitt sinn, þegar hún gekk með hann, fyllst skelfingu þegar hún sá fíl í fjölleikahúsi. Þessar ævintýralegu vangaveltur hans urðu síðan að einni af hinum ævintýralegu mýtum sem umlykja Merrick og líf hans og urðu þær til þess að hann fékk viðurnefnið Fílamaðurinn.

Fílamaðurinn.

Merrick eignaðist bróður og systur en bróðirinn lést af völdum skarlatssóttar fjögurra ára að aldri. Systirin lést af völdum meðfæddrar en óskilgreindrar fötlunar 1891. Móðir hans lést í maí 1873, þegar Merrick var 11 ára, af völdum bronkítis. Faðir hans, Joseph Rockley Merrick, kvæntist á nýjan leik en nýja konan gat ekki á neinn hátt sætt sig við soninn sem glímdi við sífellt meiri fötlun og varð sífellt umtalaðri í bænum. Faðir hans kom einnig fram við hann eins og hann væri úrhrak. Lífið var svo erfitt að á endanum flúði Merrick að heiman og flutti inn á fátækraheimilið Leicester Union Workhouse. Þar bjó hann og vann mikið næstu fimm árin. Vegna mikillar fötlunar lifði hann nánast einangraður öllum stundum, enginn vildi umgangast hann.

Var hafður til sýnis

Sumarið 1884 heyrði Merrick um svokallaðar „viðundrasýningar“ þar sem bæklað fólk var haft til sýnis í tívólíum, fjölleikahúsum og á mörkuðum. Hann ákvað að reyna að lifa af vansköpuðum líkama sínum og setti sig í samband við Sam Torr sem stóð fyrir slíkum sýningum. Torr tók hann strax inn í sýningu sína og gaf honum nafnið „The Elephant Man“ (Fílamaðurinn). Næstu mánuðina var hann hafður til sýnis í Leicester og Nottingham. Fólk streymdi að til að sjá hann en fljótlega dró úr aðsókninni því bæklun Merrick var svo mikil að þegar fólk hafði séð hann einu sinni hafði það ekki þörf fyrir að sjá hann aftur. Því fækkaði áhorfendum hratt.

Torr sendi hann því til Lundúna í árslok 1884. Þar var honum komið í samband við Tom Norman, sem stóð fyrir álíka sýningum og Sam Torr. Norman byrjaði að sýna Merrick í bakherbergi niðurlagðrar verslunar á Whitechapel Road 123 og lét Merrick einnig dvelja þar við slæman aðbúnað. Húsið var rétt hjá Royal London sjúkrahúsinu og dag einn birtist læknirinn Frederick Treves í gömlu versluninni. Hann vildi sjá þennan bæklaða mann og rannsaka hann betur. Hann bauð Merrick að koma á sjúkrahúsið í rannsóknir og þær urðu á endanum margar, svo margar að Merrick fékk nóg af þeim. En þrátt fyrir það mynduðust sterk vináttubönd á milli hans og Treves sem vörðu allt þar til Merrick lést.

Á þessum tíma dró mikið úr áhuga fólks á „viðundrasýningum“ og andstaða við slíkar sýningar fór vaxandi á Englandi. Merrick þáði því boð um að fara til Belgíu til sýningarhalds. Þar var hann sýndur margoft en ferðin varð að hreinni martröð. Farið var með hann eins og dýr og í Brussel réðst umboðsmaður hans á hann og stal öllum peningunum hans og skildi hann eftir einan og umkomulausan.

Frederick Treves var náinn vinur Fílamannsins.

Nær örmagna og óhamingjusamur komst hann á endanum, eftir miklar krókaleiðir, með lest til Liverpool Street stöðvarinnar þann 14. júní 1886. Þar umkringdi forvitið fólk hann, benti á hann og lýsti viðbjóði sínum á útliti hans. Hann vissi ekki hvert hann ætti að fara en fljótlega náði orðrómur um komu hans eyrum Frederick Treves sem sótti hann og flutti á sjúkrahúsið í Whitechapel. Treves ætlaði að veita Merrick húsaskjól og það tókst honum með því að nota tengslanet sitt hjá bresku yfirstéttinni til að safna peningum til að láta innrétta herbergi á loftinu á Bedstead Square en það var sjúkrahúsið yfirleitt kallað. Næstu fjögur árin sá þessi sami hópur um að greiða fyrir allt sem Merrick þarfnaðist, þar á meðal nokkrar ferðir í frí. Meðal þeirra sem studdu við hann fjárhagslega var breska konungsfjölskyldan. Þegar prinsinn af Wales, sem síðar varð Edward VII konungur, og eiginkona hans, Alexandra prinsessa, vígðu nýja álmu á sjúkrahúsinu 1887 krafðist prinsinn þess að fá að hitta Merrick persónulega. Eftir það fékk Merrick margoft sérstakar kveðjur frá konungsfjölskyldunni.

Treves eyddi miklum tíma með Merrick og setti hann ítarlega inn í margvísleg samfélagsmálefni sem hann hafði ekki minnstu hugmynd um því hann hafði lifað svo einangraður frá samfélaginu. Auk þess hitti hann margar konur sem komu fram við hann eins og manneskju en ekki skrímsli. Þetta var algjörlega nýtt fyrir Merrick. Draumar hans um að geta lifað lífinu eins og aðrir styrktust við þetta en líklegt má telja að það hefði hann aldrei getað vegna fötlunar sinnar.

Dagurinn örlagaríki

Snemma morguns föstudaginn 18. apríl 1890 kom Emme Ireland hjúkrunarfærðingur til að líta eftir Merrick. Hann virtist þreyttur og þreklítill en hafði það gott miðað við aðstæður að hennar mati. Síðar um daginn var honum færður matur. Konan sem það gerði lagði bakkann á borðið hjá Merrick og flýtti sér út. Hann átti erfitt með mál vegna bæklunar og ágerðist þetta með árunum. Um klukkan 15 kom Sidney Hodges læknir í hefðbundna vitjun sína til Merrick, sem lá beinn í breiðu rúmi sínu, en maturinn stóð ósnertur á borðinu. Hodges þurfti ekki langan tíma til að staðfesta að Merrick væri látinn. Hann kallaði á Evelyn Ashley lækni sér til aðstoðar. Þau rannsökuðu Merrick og komust að þeirri niðurstöðu að hann hefði kafnað og líklegast hefði hann hálsbrotnað.

Sjúkdómurinn, sem hrjáði Merrick nefnist Proteus-heilkennið. Í dag er talið að um 100 manns á heimsvísu þjáist af honum. Vegna sjúkdómsins varð Merrick að sofa sitjandi til að koma í veg fyrir að höfuð hans, sem vó 9 kíló, félli til hliðar og kæfði hann. Af þessum sökum svaf hann oft með einhvers konar trégrind um hnakkann. En á síðasta degi sínum braut hann allar reglur, hann vildi sofa eins og aðrir og það varð honum að bana.

John Hurt lék Fílamanninn í samnefndri kvikmynd.

Útförin

Síðar um daginn var lík hans flutt í líkhús sjúkrahússins. Þar var það krufið og læknar fjarlægðu alla mjúka líkamhluta af beinum hans. Lítil en formleg minningarathöfn var haldin um hann í kapellu sjúkrahússins og þann 24. apríl voru mjúku líkamshlutarnir jarðsettir í nafnlausri gröf í kirkjugarði. Þetta var gert í algjörri kyrrþey og sárafáir vissu af þessu. Áður en þetta var gert voru mörg sýni tekin af bækluðum líkama hans og þau varðveitt. Þau eyðilögðust, ásamt krufningarskýrslunni, í sprengjuárásum Þjóðverja á Lundúni 1940–1941. Beinagrindin var sett saman og höfð til sýnis í glerskáp í kjallara sjúkrahússins, sem varð síðar að Queen Mary University of London. Þar er hún enn en almenningur hefur ekki aðgang að henni því hún er geymd í læstu rými í Merrick-safninu en þar er eftirlíking af beinagrindinni til sýnis.

Grafstæðið

Þar til á þessu ári var ekki vitað hvar líkamsleifar Merrick höfðu verið grafnar en í maí komst ættfræðingurinn og rithöfundurinn Joanne Vigor Mungovin, frá Leicester, að því. Með ítarlegri yfirferð yfir ýmis skjöl og kirkjubækur tókst henni á nokkrum vikum að komast að því að Merrick er jarðsettur í City of London Cemetery. Henni tókst einnig að finna minnisblað þar sem fram kemur í hvaða gröf, en það er gröf númer 2.519.

Gröfin var ómerkt og ekkert sem gaf til kynna hver hvílir þar. En nú hefur orðið breyting á því Mungovin hefur látið koma litlu skilti með nafni hans og öðrum upplýsingum fyrir á gröfinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Horfðu með hryllingi á loftbelg fullan af ferðamönnum hrapa

Horfðu með hryllingi á loftbelg fullan af ferðamönnum hrapa
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sérfræðingur bendir á nokkur atriði sem sýna að um „Ástarbréfasvindl“ sé að ræða

Sérfræðingur bendir á nokkur atriði sem sýna að um „Ástarbréfasvindl“ sé að ræða
Pressan
Fyrir 2 dögum

Megrunarlyf gæti linað kæfisvefn hjá feitu fólki

Megrunarlyf gæti linað kæfisvefn hjá feitu fólki
Pressan
Fyrir 2 dögum

Nýfundin risaeðlutegund nefnd eftir norrænum guði

Nýfundin risaeðlutegund nefnd eftir norrænum guði
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fannst eftir að hafa verið týndur í 10 daga í skógi í Kaliforníu – Fjallaljón elti hann í langan tíma

Fannst eftir að hafa verið týndur í 10 daga í skógi í Kaliforníu – Fjallaljón elti hann í langan tíma
Pressan
Fyrir 4 dögum

Forsetinn sagður hafa klúðrað kappræðunum stórkostlega – „Hann virkaði eins og forngripur“

Forsetinn sagður hafa klúðrað kappræðunum stórkostlega – „Hann virkaði eins og forngripur“
Pressan
Fyrir 5 dögum

Vara ferðamenn við – Rúmlega 100 handteknir á Baleareyjum

Vara ferðamenn við – Rúmlega 100 handteknir á Baleareyjum
Pressan
Fyrir 5 dögum

Fjórir úr ríkustu fjölskyldu Bretlands dæmdir í fangelsi – Misnotuðu starfsfólk sitt

Fjórir úr ríkustu fjölskyldu Bretlands dæmdir í fangelsi – Misnotuðu starfsfólk sitt