Stundum er eins og fólk vakni upp algjörlega upp úr þurru, jafnvel eftir að hafa verið í dái mjög lengi. Eitt þekktasta dæmið er Munira Abdulla. Hún lenti í bílslysi 1991 og endaði í dái en hún vaknaði upp af því 27 árum síðar.
En hvað veldur því að fólk vaknar upp af dái?
Þessari spurningu var nýlega varpað fram á vef Live Science sem leitaði meðal annars svara hjá Martin Monti, sem er prófessor í sálfræði við UCLA og vinnur við rannsóknir á dásvefni. „Stutta svarið er að vitum vitum það eiginlega ekki,“ sagði hann og bætti við að það sé ástæðan fyrir að lítið sé um að gripið sé inn í til að hjálpa fólki að komast aftur til meðvitundar.
Til að fólk lendi í dái, verður eitthvað að koma fyrir heilann, til dæmis meiðsli, bólgur eða sýking. Til að sjúklingurinn geti vaknað upp af dáinu verður heilinn að jafna sig með því að endurnýja skaddaðar taugafrumur eða með því að útvíkka starfsemi sína og láta aðra hluta heilans taka yfir starfsemi þess skaddaða.