Allard þessi átti nokkuð reisulegt sex herbergja hús og leigði hann herbergin aðeins út til kvenna, helst ungra kvenna. Hann fór fram á kynferðislega greiða gegn því að leigja þeim herbergin og í að minnsta kosti eitt skiptið braut hann kynferðislega gegn 19 ára stúlku sem sýndi áhuga á að leigja herbergi.
Daily Mail afhjúpaði Allard árið 2021 þegar blaðakona þóttist vera að leita að herbergi til að leigja. Var blaðakonan búin upptökubúnaði og mátti til dæmis heyra þegar Allard bauð henni ríflegan afslátt af leigunni gegn kynferðislegum greiðum.
Í annað skipti fór hann fram á að kvenkyns leigjandi veitti honum munnmök gegn því að fá að halda herberginu.
Þá kom fyrir dóminn ung kona sem þurfti að yfirgefa heimili sitt árið 2019, þegar hún var tvítug. Hún sendi Allard skilaboð í gegnum leigumiðlunarvefinn Spareroom og bauð hann henni í heimsókn til að skoða aðstæður. Sagði hann við að hana að hann „ætlaðist til þess að fá ýmislegt í skiptum“ fyrir að leigja herbergið. Fát kom á ungu konuna sem yfirgaf húsið í flýti.
Í frétt Daily Mail í dag kemur fram að við leit í tölvum Allards hafi fundist stórt og mikið klámmyndasafn, þar á meðal efni sem á að sýna leigusala misnota neyð ungra kvenna.
Dómarinn í málinu var ómyrkur í máli og sagði að Allard hafi reynt að notfæra sér neyð ungra kvenna sem voru í leit að þaki yfir höfuðið. Sagði dómari að stúlkan sem hann braut gegn glími enn við afleiðingarnar.
Allard verður í fangelsi næstu 32 mánuðina og verður á lista yfir dæmda kynferðisbrotamenn næstu tíu árin.