Sem betur fer er svo mikil ókyrrð, eins og vél Singapore Airlines lenti í, mjög sjaldgæf. Metro ræddi nýlega við Meryl Love, flugfreyju sem sagði að flugfarþegar eigi ekki að hafa miklar áhyggjur af ókyrrð í lofti þegar þeir fljúga næst.
„Áhöfnin fundar um öryggismál fyrir hvert flug. Flugmennirnir horfa á ratsjá og láta okkur vita hvenær við getum átt von á ókyrrð. Sætisbeltaljósið kviknar og við göngum um allt farþegarýmið til að kanna hvort allir séu ekki með beltin spennt. Þótt ókyrrðin sé óvænt, þá vita flugmennirnir hvað þeir eiga að gera og einbeita sér algjörlega að öryggi flugvélarinnar,“ sagði hún.
„Í flestum tilfellum þá er eini munurinn fyrir farþega að áhöfnin hættir að bera fram heita drykki og þeir mega ekki standa upp úr sætunum sínum. Það er best að hugsa um ókyrrð í lofti sem eitthvað sem líkist því að keyra yfir hraðahindrun,“ sagði hún einnig.
Hún lumar síðan á góðu ráði til að róa taugaóstyrka farþegar: „Ég veit að farþegarnir horfa á mig til að sjá hvernig ég bregst við, sérstaklega ef ókyrrðin er svo mikil að áhöfnin verður að fá sér sæti. Ég set því upp stórt falskt bros. Ég þykist hlæja að brandara og lít bara út fyrir að vera hamingjusöm. Þetta er rútína sem virðist virka.“