fbpx
Laugardagur 31.ágúst 2024
Pressan

Féll fyrir svikabragði og millifærði 3,4 milljarða

Pressan
Föstudaginn 9. febrúar 2024 07:30

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hann hélt að hann væri að taka þátt í myndfundi með vinnufélögum sínum en raunveruleikinn var allt annar. Maðurinn sem starfar hjá alþjóðlegu fjármálafyrirtæki var blekktur til að millifæra 25 milljónir dollara, sem jafngilda um 3,4 milljörðum íslenskra króna.

CNN skýrir frá þessu og segir að lögreglan í Hong Kong sé nú að rannsaka málið. Fram kemur að starfsmanninn hafi farið að gruna að ekki væri allt með felldu þegar hann fékk tölvupóst frá aðila sem sagðist vera hinn breski fjármálastjóri fyrirtækisins.

Í fyrstu taldi starfsmaðurinn að tölvupósturinn væri tilraun til að svíkja út fé. En þessum grun var sparkað langt út í horn þegar hann tók þátt í myndfundi þar sem margir þátttakendanna hljómuðu og líktust vinnufélögum hans. Af þeim sökum féllst hann á að millifæra þessa háu upphæð.

CNN segir að málið bætist í hóp fjölda svipaðra mála þar sem svikahrappar hafa notast við djúpfölsunartækni. Það er að sögn lögreglunnar tækni þar sem gervigreind er notuð til að búa til stafræna „eftirlíkingu“ af manneskju með því að líkja eftir rödd hennar og andliti.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Sat látin við skrifborðið sitt í nokkra daga og enginn tók eftir því

Sat látin við skrifborðið sitt í nokkra daga og enginn tók eftir því
Pressan
Í gær

Fyrrum forstjóri Netflix hvetur fólk til að vinna ekki svona mikið

Fyrrum forstjóri Netflix hvetur fólk til að vinna ekki svona mikið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Lík hans fannst í helli árið 1977 – Nú er loksins búið að bera kennsl á hann

Lík hans fannst í helli árið 1977 – Nú er loksins búið að bera kennsl á hann
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ellilífeyrisþegi lét innbrotsþjófinn finna hvar Davíð keypti ölið

Ellilífeyrisþegi lét innbrotsþjófinn finna hvar Davíð keypti ölið
Pressan
Fyrir 3 dögum

Deadpool-morðinginn dæmdur til dauða: „Ég hef aldrei séð neinn jafn illan og hann“

Deadpool-morðinginn dæmdur til dauða: „Ég hef aldrei séð neinn jafn illan og hann“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fara fram á dauðadóm yfir þremur Bandaríkjamönnum

Fara fram á dauðadóm yfir þremur Bandaríkjamönnum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Meiri líkur á bílveiki þegar ekið er í rafbíl

Meiri líkur á bílveiki þegar ekið er í rafbíl
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hún vinnur við að fjarlægja skapahár en eitt neitar hún að gera

Hún vinnur við að fjarlægja skapahár en eitt neitar hún að gera