Talið er að hún sé um 10 ára og heiti Kim Ju-ae. En eftir því sem suðurkóreska leyniþjónustan kemst næst, þá er frumburður einræðisherrans sonur. Honum hefur verið haldið algjörlega frá sviðsljósinu. Engar myndir hafa verið birtar af honum og ekki er vitað hvað hann heitir.
Choe Su-yong, fyrrum starfsmaður suðurkóresku leyniþjónustunnar, segir að þetta sé vegna þess að hann sé „of fölur og horaður“ til að falla að smekk Norðurkóreumanna og að hann myndi verða föður sínum til skammar því „hann sé ekki nægilega feitur“.
Kim Jong-un, sem er fertugur, er þriðji ættliður Kim-fjölskyldunnar sem stýrir landinu og það hafa þeir allir gert með harðri hendi. Landið er harðlokað einræðisríki þar sem mannréttindi og tjáningarfrelsi fyrirfinnast ekki.