Andoxunarefni eru vopn náttúrunnar gegn hættulegum sameindum sem frumur líkamans mynda í sífellu þegar þær vinna vinnuna sína. Þessar sameindir, sem eru óstöðugar, geta skaðað frumurnar og valdið sjúkdómum á borð við krabbamein þegar við eldumst.
Live Science segir að rannsóknir hafi sýnt fram á að það geti verið skaðlegt að innbyrða of mikið af andoxunarefnum. En aðrar rannsóknir hafa sýnt fram á að fólk sem neytir mikils af andoxunarríkum ávöxtum, grænmeti og belgjurtum sé oft síður líklegt til að fá hjarta- og æðasjúkdóma, krabbamein og að deyja ótímabærum dauða.
Það er því freistandi að ætla að það geti verið ávinningur af því að neita fleiri andoxunarefna, til dæmis í formi fæðubótarefna, en með því að taka andoxunarefni í því formi er auðvelt að innbyrða meira en ráðlagt magn af þeim og það getur verið skaðlegt.
Aukaverkanir af of miklu magni andoxunarefna geta verið allt frá því að vera mild upp í alvarleg. Á mildari endanum er að húðin getur orðið gul eða appelsínugul, ekki hættulegt en ekki útlitsfagurt. Of mikil neysla C-vítamíns getur valdið meltingarvandamálum eins og niðurgangi og magakrömpum.
Of mikil neysla á beta-karótíni getur aukið hættuna á lungnakrabbameini og hjarta- og æðasjúkdómum hjá þeim sem eru fyrir í aukinni hættu á að fá þessa sjúkdóma, þetta geta til dæmis verið reykingafólk og fólk sem hefur komist í snertingu við asbest. Það eru einnig vísbendingar, úr rannsóknum á dýrum og mannavef, að andoxunarefni geti ýtt undir vöxt sumra tegunda krabbameins.
Það er því greinilega hægt að innbyrða of mikið af andoxunarefnum.