Þegar fornleifafræðingar aldursmátu myndirnar fyrst töldu þeir þær vera nokkur þúsund ára gamlar. En ný greining á þeim sýnir að sumar þeirra eru allt að 11.700 ára gamlar.
Þetta kemur fram í nýrri rannsókn sem var birt nýlega í vísindaritinu Science Advances. Myndirnar sýna fólk, dýr og fleira. Vísindamenn tóku örlítil sýni úr þeim til aldursgreininga.
Vísindamennirnir töldu 895 myndir í hellinum og voru mótífin 446. Ekki er vitað hvaða menningarsamfélag stóð að baki gerð myndanna en vísindamenn telja hugsanlegt að þær hafi verið notaðar til að koma upplýsingum á milli kynslóða.
Eins og áður sagði eru þetta elstu þekktu hellamyndirnar í Suður-Ameríku en elsta þekkta hellamyndin í heiminum er 45.500 ára og er af vörtusvíni. Hún er í helli í Indónesíu.