Eldurinn var fljótur að breiðast út og varð byggingin alelda áður en slökkviliðið tókst að ná tökum á eldinum. Lögregla og slökkvilið hafa meðal annars notast við dróna við að finna lík og í umfjöllun Mail Online kemur fram að nokkur lík hafi sést á svölum íbúða hússins.
Alls eru 138 íbúðir í húsinu en tilkynning um eldinn barst klukkan 17:30 að staðartíma í gær.
Slökkviliðsmenn segja nær engar líkur á því að einhver finnist lifandi í húsinu og er óttast að tala látinna fari því yfir tuttugu.
Tólf einstaklingar af þeim fjórtán sem fluttir voru á sjúkrahús eftir eldsvoðann voru þar í nótt.
Nokkrir íbúar náðu að komast í skjól með aðstoð slökkviliðsmanna, þar á meðal par sem sat fast á svölum íbúðar á sjöundu hæð í tvær klukkustundir. Þá tókst að minnsta kosti einum íbúa að stökkva ofan á uppblásna dýnu sem slökkviliðsmenn höfðu komið fyrir.