Fátt bendir til þess að stríð Ísraels og Hamas muni enda í bráð og er staðan víða á Gaza-ströndinni orðin alvarleg. Á sjúkrahúsum er eitt helsta áhyggjuefnið skortur á nauðsynlegum lyfjum, til dæmis verkjalyfjum sem geta linað þjáningar þeirra verst særðu.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin, WHO, segir að ástandið sé mjög alvarlegt. Alls eru 23 sjúkrahús á svæðinu óstarfhæf og 12 eru starfhæf að hluta vegna loftárása og skorts á nauðsynjum. Nú síðast varð Nasser-spítalinn á suðurhluta Gaza óstarfhæfur í gær.
Ísraelsher hefur rökstutt árásir sínar á sjúkrahús þannig að liðsmenn Hamas noti þau sem skjól fyrir starfsemi sína. Í yfirlýsingu til BBC segir Ísraelsher að mannúðaraðstoð sé hleypt inn á svæðið með nauðsynjar en WHO segir hins vegar að það hafi gengið hægt og illa.
Staðan á sjúkrahúsum er mjög alvarleg og dæmi um að allt að þrefalt fleiri dvelji á sjúkrahúsum n pláss er fyrir.
Yousef al-Akkad, framkvæmdastjóri Gaza European Hospital í borginni Khan Younis, segir að ástandið nú hafi aldrei verið jafn alvarlegt síðan stríðið braust út í október. Sjúklingar fylli sjúkrahúsið og margir þurfi að gera sér að góðu að liggja á teppum á gólfinu.