fbpx
Laugardagur 31.ágúst 2024
Pressan

Ætlarðu að kaupa þér nýju Donald Trump-skóna?

Pressan
Mánudaginn 19. febrúar 2024 09:06

Skórnir eru ekki í ódýrari kantinum en eflaust vilja margir stuðningsmenn Trump eignast eins og eitt par.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti og líklegur kandídat Repúblikanaflokksins fyrir komandi kosningar, er kominn í skóbransann.

Trump kynnti um helgina nýja skólínu á Sneaker Con-ráðstefnunni í Philadelphiu um helgina.

Eins og myndin ber með sér er ekki um að ræða neina venjulega svarta spariskó. Trump-skórnir eru gulllitaðir og skreyttir með bandaríska fánanum að ofanverðu. Þá er bókstafurinn T á hlið þeirra sem táknar eftirnafn forsetaframbjóðandans, Trump.

Skórnir kosta 399 dollara, eða 55 þúsund krónur, og eru fáanlegir á vefsíðunni GetTrumpSneakers.com. Þeir sem vilja lykta eins og Trump geta einnig keypt þar Victory47-ilmvatnið hans fyrir 99 dollara.

„Mig hefur langað að gera þetta í langan tíma,“ sagði Trump þegar hann kynnti skóna.

Í frétt Wall Street Journal kemur fram að allar stærðir hafi selst upp þegar skórnir fóru í sölu um helgina.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Sat látin við skrifborðið sitt í nokkra daga og enginn tók eftir því

Sat látin við skrifborðið sitt í nokkra daga og enginn tók eftir því
Pressan
Í gær

Fyrrum forstjóri Netflix hvetur fólk til að vinna ekki svona mikið

Fyrrum forstjóri Netflix hvetur fólk til að vinna ekki svona mikið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Lík hans fannst í helli árið 1977 – Nú er loksins búið að bera kennsl á hann

Lík hans fannst í helli árið 1977 – Nú er loksins búið að bera kennsl á hann
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ellilífeyrisþegi lét innbrotsþjófinn finna hvar Davíð keypti ölið

Ellilífeyrisþegi lét innbrotsþjófinn finna hvar Davíð keypti ölið
Pressan
Fyrir 3 dögum

Deadpool-morðinginn dæmdur til dauða: „Ég hef aldrei séð neinn jafn illan og hann“

Deadpool-morðinginn dæmdur til dauða: „Ég hef aldrei séð neinn jafn illan og hann“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fara fram á dauðadóm yfir þremur Bandaríkjamönnum

Fara fram á dauðadóm yfir þremur Bandaríkjamönnum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Meiri líkur á bílveiki þegar ekið er í rafbíl

Meiri líkur á bílveiki þegar ekið er í rafbíl
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hún vinnur við að fjarlægja skapahár en eitt neitar hún að gera

Hún vinnur við að fjarlægja skapahár en eitt neitar hún að gera