Steypireyðar eru stærstu dýr jarðarinnar en þær geta orðið allt að 34 metra langar. Steypireyðum snarfækkaði snemma á tuttugustu öldinni vegna hvalveiða í atvinnuskyni. Af þeim sökum er tegundin á lista yfir dýrategundir í útrýmingarhættu. Góðu fréttirnar eru að nú fjölgar í stofninum.
Í nýrri rannsókn, sem hefur verið birt í vísindaritinu Conservation Genetics, kemur fram að vísindamenn hafi rannsakað erfðamengi B. musculus musculus, sem er ein fjögurra undirtegunda steypireyða og hefst hún við í Norður-Atlantshafi og norðanverðu Kyrrahafi. Rannsóknin leiddi í ljós að dýr af þessari tegund hafa makast við langreyði og eignast afkvæmi með þeim. Live Science skýrir frá þessu.
Erfðaefni 31 dýrs var rannsakað og reyndist 3,5% af erfðaefni dýranna, að meðaltali, vera frá langreyðum komið.
Vísindamenn hafa lengi vitað að steypireyðar og langreyðar geta makast og og eignast afkvæmi. Þetta geta tegundirnar þrátt fyrir að mikill stærðarmunur sé á þeim. Steypireyður er að meðaltali 85 tonnum þyngri en langreyður að því er The New York Times segir. Afkvæmi tegundanna líkjast oft óvenjulega stórum langreyðum með lit og kjálka steypireyðar.
Þar til nýlega var talið að þessi afkvæmi væru ófrjó og gætu því ekki eignast afkvæmi en þannig er það hjá flestum öðrum dýrum sem eru afkvæmi tveggja tegunda. En rannsókn, sem var gerð 2018, leiddi í ljós að sumir af þessum blönduðu hvölum geta eignast afkvæmi með steypireyðum.