Litlir hlutir á borð við að stafla diskunum eða finna sér sjálfur borð, geta virst ósköp saklausir en geta gert starf þjónanna erfiðara.
Meðal þessara hluta eru:
Að finna sér borð sjálfur – Þetta á ekki að gera því veitingastaðir eru oft með kerfi sem þeir nota til að auðvelda þjónunum vinnuna.
Réttur dagsins – Þegar þjónninn kynnir rétt dagsins, þá getur verið góð hugmynd að hlusta því kokkarnir hafa útbúið sérstaka rétti sem gætu komið þér á óvart.
Spjall – Það getur verið huggulegt að spjalla aðeins við þjóninn en leyfðu honum að stýra samtalinu því hann þarf oft að sinna fleiri borðum og löng samtöl geta seinkað honum.
Pöntun – Þú átt að panta matinn hjá þjóninum þínum því ef þú pantar hjá öðrum þjóni, þá getur það valdið ruglingi og valdið mistökum. Þegar þjóninn kemur með matinn, þá er best að láta hann taka allt af bakkanum því hann raðaði sjálfur á hann til að tryggja jafnvægið.
Sóðaskapur – Ef þú sullar niður, þá skaltu ekki þrífa það sjálf(ur). Láttu starfsfólkið um það, því það er með rétta útbúnaðinn til þess.
Að stafla diskum – Það virðist vera hjálplegt að stafla diskunum eftir matinn en ekki gera það. Það er best að þjónninn geri það því hann er með ákveðna aðferð við það til að gera sér auðveldara fyrir við að bera þá á brott.