Þegar timburmenn herja, þá glímir líkaminn við vökvaskort og það er oft eins og smiður sé að störfum í höfðinu. Þá er mikilvægt að koma jafnvægi á vökvann að nýju, fylla líkamann af næringarefnum og láta magann fá eitthvað sem hann ræður við.
Hér er listi yfir það besta sem þú getur látið ofan í þig þegar timburmenn herja á þig:
Bananar – áfengi getur þurrkað líkamann og skolað út efnum á borð við kalíum. Kalíumskortur getur valdið þreytu og krömpum. Þá koma bananar sterkir inn því þeir eru auðmeltir og innihalda kalíum sem hjálpar til við að koma aftur á jafnvægi í líkamanum.
Ristað brauð með eggi – þessi einfalda samsetning er mild fyrir magann og virkar mjög vel. Brauðið færir þér kolvetni, sem hækka blóðsykurmagnið, en eggin innihalda amínósýru sem hjálpar lifrinni að brjóta niður eiturefni úr áfenginu.
Matarteningur – getur gert góða hluti fyrir timburmennina. Líkaminn þarf vökva og salt og því er upplagt að leysa matartening upp í vatni og drekka.
Lárpera – getur einnig gert góða hluti. Hún inniheldur holl fituefni og kalíum. Þetta færir þér snöggt orkuskot og hjálpar til við að koma jafnvægi á magann. Þess utan er ristað brauð með lárperu ljúffengt.