Það kemur kannski á óvart að fallegasti staðurinn fyrir tréð getur um leið verið sá hættulegasti.
Ef þú býrð svo vel að vera með arinn í húsinu þá veistu eflaust að jólatréð tekur sig vel út nærri honum en um leið getur þetta verið mjög hættuleg staðsetning. Að setja tréð nærri arninum er klassískt því blanda af daufri birtunni af logunum í eldiviðnum myndar töfrandi stemmningu í bland við skrautið á trénu. En þetta getur verið mjög hættuleg staðsetning því neistar geta hrokkið í tréð og kveikt í því. Tryggðu að það sé að minnsta kosti 1 metri á milli trésins og hitagjafans.
Jólatréð getur auðvitað sæmt sér vel við glugga, sérstaklega ef hann er stór. Serían og skrautið gleðja augað, bæði fyrir þá sem eru inni og úti. En þetta getur einnig glatt auga þjófa, sérstaklega ef gjafir eru sýnilegar undir trénu. Ef þú kýst að hafa tréð við glugga, þá skaltu forðast að láta verðmæta hluti og jólapakka sjást. Það er líka hægt að kaupa gardínur sem hleypa birtu inni en gera fólki um leið erfitt fyrir við að sjá inn í húsið.
Það þarf að setja seríu á tréð og það þarf að setja hana í samband. Þú verður að forðast að setja það upp á stað þar sem þú þarft að setja það í samband í innstungu eða fjöltengi sem mikið álag er á. Skammhlaup er ein algengasta orsök eldsvoða um jólin. Notaðu bara góðar framlengingarsnúrur og spennubreyta og fylgstu með hvort þetta sé nokkuð að ofhitna.
Þú vilt væntanlega að gestir sjái jólatréð en ef þú kemur því fyrir í þröngum gangi eða á svæðum sem mikið er gengið um, þá getur það verið slæm hugmynd. Það getur þá verið í vegi fyrir neyðarútgangi og það getur líka oltið ef börn, gæludýr eða fjarhuga gestir rekast í það.
Hafðu öryggið í fyrirrúmi og veldu stað þar sem jólatréð nýtur sín vel og öryggið er í fyrirrúmi.