Þetta segir hjartalæknirinn Roque Savioli í færslu á Instagram og segir frá fimm af þessum fæðutegundum.
Það er því ekki slæm hugmynd að hafa þessar fæðutegundir sem hluta af mataræðinu, sérstaklega ef þú vilt hafa heilbrigði hjartans í fyrirrúmi.
Sardínur eru á listanum því þær innihalda mikið af omega-3 og coenzym Q10 sem vernda hjartað og vöðvana. Savioli ráðleggur fólki einnig að borða fisk tvisvar í viku.
Rauðbeður eru einnig á listanum en Savioli segir að það verði þó að borða þær hráar til að hámarka gagnsemi þeirra.
Kál inniheldur mikið af magnesíum sem verndar hjartað og vinnur gegn verkjum. Það er því þess virði að borða meira kál ef þú vilt innbyrða meira magnesíum.
Súkkulaði er einnig á listanum en þó aðeins dökkt súkkulaði, það er súkkulaði sem inniheldur að minnsta kosti 70% kakó. Savioli ráðleggur fólki að borða um 10 grömm af slíku súkkulaði þrisvar á dag eða 30 grömm á dag. Það er nú líklega ekki mjög erfitt að gera súkkulaði að hluta af daglegri neyslu sinni því fáir hafa nokkuð á móti því að borða súkkulaði.
Yacon-kartöflur eru einnig á listanum en það er nú kannski ekki auðvelt að verða sér úti um þær hér á landi. Þær eru upprunnar frá Andesfjöllunum og eru góðar fyrir fólk með sykursýki og hjartasjúkdóma vegna andoxunarefnanna í þeim.