Í rannsókninni, sem hefur verið birt í vísindaritinu British Journal of Sports Medicine, kemur fram að vísindamennirnir hafi beint sjónum sínum sérstaklega að tengslunum á milli hreyfingar og heilsufars. Í rannsókninni var stuðst við 196 eldri rannsóknir en þær náðu til 30 milljóna manna. Elle skýrir frá þessu.
Niðurstöðurnar sýna að fólk, sem hreyfir sig í 75 mínútur á viku, þar á meðal með rösklegri göngu, var síður líklegt til að deyja ótímabærum dauða og munaði þar 23%.
Þegar kafað var enn dýpra ofan í gögnin kom í ljós að 75 mínútna hreyfing, með miðlungs ákefð, dró úr líkunum á hjarta- og æðasjúkdómum um 17% og um 7% á krabbameini.
Vísindamennirnir segja að göngutúrar séu kjörin hreyfing, það sé auðvelt að fara í göngutúr því aðeins þurfi að fara í skó og koma sér af stað. Það þurfi enga sérstaka færni og þess utan sé sjaldgæft að fólk sé hrætt við að fara í göngutúr. Þess utan er ganga góð fyrir hjarta- og æðakerfið. Gönguferðir eru einnig góðar fyrir beinin og hreyfigetu fólks.
Rannsóknir hafa einnig sýnt að ef fólk stundar reglulegar gönguferðir, þá er það skapbetra, hjartað verður heilbrigðara og það eru minni líkur á sykursýki.
Rannsóknin leiddi í ljós að það þarf aðeins að ganga rösklega í 11 mínútur á dag til að gönguferðir hafi heilsufarslegan ávinning í för með sér. En það þýðir auðvitað ekki að maður eigi að stoppa eftir 11 mínútur.