Lögreglan í New York leitar enn að skotmanninum sem banaði forstjóra UnitedHealthcare (UHC) í síðustu viku. Á föstudaginn fann lögregla bakpoka í Central Park sem er talinn tilheyra skotmanninum. Greint var frá innihaldi pokans á laugardaginn. Þar fundust hvorki vopn né persónuskilríki heldur Tommy Hilfiger jakki og nokkuð magn af gervipeningum úr borðspilinu Monopoly.
Lögregla hefur nú birt fleiri myndir af meintum skotmanni í von um aðstoð frá almenningi.
Bandarískir fjölmiðlar greindu sumir frá því um helgina að lögregla hefði borið kennsl á skotmanninn. Má rekja þær fréttir til ummæla borgarstjórans, Eric Adams. Hann sagði á laugardag að netið væri að þrengjast. Blaðamenn spurðu þá hvort lögregla væri komin með nafn skotmannsins og svaraði Adams:
„Við viljum ekki gefa það upp að svo stöddu. Með því að gera slíkt væri maður í raun að vara manneskjuna sem við leitum við og við viljum ekki gefa honum neitt forskot. Leyfum honum að trúa því áfram að hann geti falið sig á bak við grímu. Við höfum afhjúpað andlit hans og við munum afhjúpa það hver hann er og við munum draga hann til ábyrgðar.“
Þessi ummæli urðu til þess að New York Post sló því upp í fyrirsögn fréttar að lögregla hefði nafnið á skotmanninum en væri að halda því leyndu að svo stöddu. Aðrir miðlar á borð við Reuters vitnuðu svo í fréttina. Fréttunum hefur nú verið breytt og DailyBeast tók fram í gær að lögregla viti ekki enn deili á skotmanninum og segist ekki vita hver hvatinn fyrir morðinu var.
Margir á samfélagsmiðlum telja þó ljóst að morðið tengist starfsemi UHC sem er bæði stærsta tryggingafélag Bandaríkjanna hvað sjúkratryggingar varðar og líka verulega umdeilt. UHC nýtti sér til dæmis gervigreind til að taka afstöðu til tryggingakrafna viðskiptavina. Núna hefur UHC verið stefnt fyrir dóm og því haldið fram að gervigreindin hafi neitað fjölda eldri borgara um heilbrigðisþjónustu með ólögmætum hætti. Samkvæmt stefnu í málinu vissi UHC að gervigreindin hafði rangt fyrir sér í um 90 prósent tilvika en hafi engu að síður haldið áfram að nýta sér þessa tækni. Fyrirtækið hafi treyst því að aðeins brotabrot þeirra sem var neitað um greiðslur myndu leita réttar síns. Umdeildu málin eru enn fleiri og hefur UHC meðal annars verið sakað um ólögmæta viðskiptahætti, innherjasvik og fleira.
Mörgum þykir ljóst að skotmaðurinn var að senda skilaboð með ódæðinu. Hann áletraði skothylki með orðunum deny, defend, depose sem er talin vísun í bók sem lögfræðiprófessorinn Jay M. Feinman gaf út árið 2010. Þar fjallaði hann með gagnrýnum hætti um bandaríska tryggingakerfið sem fórni hagsmunum tryggingataka fyrir gróða. Feinman sagði félögin gjarnan nota aðferðir á borð við að tefja mál, neita lögmætum kröfum og beita svo fjárhagslegum yfirburðum gegn tryggingatökum fyrir dómstólum.
Eins hafi monopoly-seðlarnir líklega verið vísun til viðskiptahátta UHC því tilgangur borðspilsins er að gagnrýna kapítalisma. Eins gætu seðlarnir verið vísun til þess að UHC sé í markaðsráðandi stöðu sem félagið nýti sér til að féfletta veika Bandaríkjamenn. Réttargeðlæknirinn Carole Lieberman segir í samtali við DailyBeast að seðlarnir sendi skýr skilaboð. „Bæði þau að UnitedHealthcare sé svikari sem stelur peningum af sjúklingum til að greiða framkvæmdastjórum milljónir, og að félagið sé í einokunarstöðu. Hann gæti hafa ætlað sér að dreifa monopoly seðlunum hjá líki forstjórans eftir morðið, en gleymdi að taka seðlana úr bakpokanum.“
Lieberman telur skotmanninn haldinn sjálfsupphafningar-persónuleikaröskun. Hann sé að leika sér að lögreglunni og ætli sér að sanna að hann sé klárari en lögreglan.
Skotmaðurinn hefur undanfarna viku verið hylltur sem hetja á netinu og málið dregið ósanngjarnt fyrirkomulag einkavæðingar í heilbrigðiskerfinu og sjúkratryggingum í sviðsljósið. Margir sögðust vona að morðið boðaði breytta og manneskjulegri starfsemi tryggingafélaga. Forstjóri móðurfélags UHC, UnitedHealth Croup, ávarpaði starfsfólk sitt þremur dögum eftir morðið. Forstjórinn, Andew Witty, sagði starfsfólki að hann væri stoltur af starfsemi UHC í þágu fólks í neyð og að fyrirtækið muni halda ótrautt áfram. Hann bað starfsfólk að leiða hjá sér neikvæða umræðu um fyrirtækið.
„Hún endurspeglar ekki raunveruleikann. Þetta er bara merki um þá tíma sem við erum nú að lifa.“
Raunin sé að Bandaríkin þurfi fyrirtæki eins og UHC.
Mikil þórðargleði hefur ríkt í netheimum frá morðinu og hafa jafnvel hetjusöngvar verið samdir um skotmanninn sem er kallaður réttlætisriddari, Hrói höttur og Tjónafulltrúinn (e. Adjuster). Um helgina fór meira að segja fram eins konar eftirhermukeppni í Central Park þar sem fólk klæddi sig upp sem skotmanninn. Bolir eru nú seldir á netinu með áletruninni sem fannst á skothylkjunum og tugir þúsunda hafa boðið skotmanninum aðstoð sína ef hann vantar fjarvistarsönnun. Hópar netverja sem hafa mikinn áhuga á glæpum og gjarnan veitt lögreglunni lið í rannsóknum hafa lýst því yfir að þeir ætli ekki að reyna að upplýsa málið. Einn slíkur rannsakandi sagði hreinlega við fjölmiðla: „Við erum frekar áhugalaus um það. Kröfunni um samúðaróskir hefur verið hafnað á þessum bæ.“
Morðinginn gengur enn laus og telur lögregla ljóst að hann sé ekki lengur í New York-borg. Nú eru kafarar að leita að byssunni í tjörnum Central Park ásamt leitarhundum og Alríkislögreglan FBI hefur heitið rúmlega 7 milljónum í laun fyrir þá sem geta veitt upplýsingar um skotmanninn.
Fyrrverandi lögreglustjóri frá Bostin, Ed Davis sem fór fyrir rannsókninni á sprengjunni í Boston maraþoninu árið 2013, segir skelfilvegt að sjá hversu kaldrifjaðir Bandaríkjamenn eru á netinu þessa daganna. „Þetta er stórt vandamál. Það er verulega truflandi hversu mikið fólki skortir samkennd.“
Lögreglan í Atlanta veitir félögum sínum í New York aðstoð en grunur leikur á að skotmaðurinn hafi flúið þangað.
“Who’s the organizer for this?”
“The FBI,” quips one United Healthcare CEO assassin lookalike competition participant. https://t.co/SePD07DY9a pic.twitter.com/CX7KIVKs8h
— Talia Jane ❤️🔥 (@taliaotg) December 7, 2024