fbpx
Miðvikudagur 04.desember 2024
Pressan

Virtur ljósmyndari lenti í ótrúlegri uppákomu á flugvelli – Sjáðu myndbandið

Pressan
Mánudaginn 2. desember 2024 15:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Pervez Taufiq, virtur brúðkaupsljósmyndari, lenti í ömurlegri uppákomu ásamt fjölskyldu sinni þegar hann var á leið frá Cancun í Mexíkó til Los Angeles í Bandaríkjunum.

Pervez var á ferðalagi með fjölskyldu sinni; eiginkonu og þremur börnum, þegar kona um borð í flugvélinni fór að demba yfir þau ókvæðisorðum. Pervez hefur til að mynda ljósmyndað fyrir Vogue og Harper’s Bazaar og er hann með yfir 140 þúsund fylgjendur á Instagram.

New York Post greinir frá þessu.

Pervez segir að 11 ára sonur hans hafi setið við hliðina á konunni í flugvélinni og hún hafi látið rasísk orð falla um hann. Pervez er fæddur í Boston en er af indversku bergi brotinn eins og fjölskylda hans. Þegar fjölskyldan var komin um borð í flugrútuna sem ferjaði farþega í flugstöðina hélt konan áfram og ákvað Pervez í kjölfarið að taka upp símann.

„Fjölskyldan þín er frá Indlandi. Þið hafið enga virðingu, engar reglur, þið haldið að þið getið ýtt öllum – ýtt, ýtt, ýtt. Þið eruð f-king rugluð,” sagði hún. Frekari orðaskipti fóru fram á milli Pervez og konunnar og ýjaði hún meðal annars að því að hann væri ekki Bandaríkjamaður.

Pervez segir í samtali við New York Post að það hafi verið óraunverulegt að lenda í þessari uppákomu. „Maður hefur oft séð svona á netinu en maður býst aldrei við því að lenda í einhverju svona sjálfur.”

Hann segist fyrst hafa átt orðaskipti við konuna þegar hann fór að athuga með son sinn sem sat nokkrum sætaröðum framar en hann. Konan hafi ekki verið í sætinu sínu og orðið pirruð þegar hún sá að Pervez stóð fyrir sætinu hennar. Hreytti hún í hann að hann væri fyrir henni og hvort hann gæti fært sig. „Ég sagði bara auðvitað og baðst afsökunar.“

Þegar vélin lenti sagði sonur hans við föður sinn að konan hefði spurt hann hvort hann væri Indverji og verið með almenn leiðindi. Leiðindin hafi svo byrjað fyrir alvöru þegar konan sagði börnum Pervez að þegja um borð í rútunni. Varð það til þess að hann tók upp símann og myndaði samskiptin sem fóru á milli.

Konan gaf sig á tal við starfsfólk á flugvellinum eftir að Pervez tók upp símann en að sögn sjónarvotta endaði það þannig að hún var sjálf fjarlægð úr rútunni.

Myndbandið er hægt að sjá hér að neðan. Ef það hleðst ekki er hægt að nálgast það á Instagram-síðu Pervez.

 

View this post on Instagram

 

A post shared by Pervez Taufiq (@ptaufiqphotography)

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Þessar venjur laða skordýr að heimilinu

Þessar venjur laða skordýr að heimilinu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Svona margar bakteríur eru í eldhússvampi

Svona margar bakteríur eru í eldhússvampi
Pressan
Fyrir 4 dögum

Þingkona hverfur á braut í kjölfar fyllerís og misheppnaðrar viðreynslu

Þingkona hverfur á braut í kjölfar fyllerís og misheppnaðrar viðreynslu
Pressan
Fyrir 5 dögum

Má loksins tjá sig um hryllinginn á kaffihúsinu árið 2014

Má loksins tjá sig um hryllinginn á kaffihúsinu árið 2014
Pressan
Fyrir 5 dögum

Nágranninn átti sér skuggalegt leyndarmál

Nágranninn átti sér skuggalegt leyndarmál
Pressan
Fyrir 5 dögum

Fræðsluyfirvöld í Texas samþykktu að námsskrá grunnskóla skuli vera á grunni Biblíunnar

Fræðsluyfirvöld í Texas samþykktu að námsskrá grunnskóla skuli vera á grunni Biblíunnar