Fyrir um ári var Brian Cleary, lyfsali og mikill áhugamaður um sagnfræði og bókmenntir, einu sinni sem oftar að grúska í gömlum bókum og blöðum á Landsbókasafninu í Dublin, höfuðborg Írlands. Brian datt heldur betur í lukkupott grúskarans og fann nokkuð sem hafði mikið sögulegt gildi og hafði ekki verið uppgötvað áður, týnda smásögu eftir einn af helstu bókmenntarisum sögunnar, sjálfan skapara Drakúla greifa, Bram Stoker.
Vefmiðilinn All That´s Interesting greinir frá þessu.
Cleary var að fletta gömlu eintaki af dagblaðinu Dublin Daily Express og rakst þá á auglýsingu þar sem minnst var á smásöguna Gibbet Hill eftir Bram Stoker. Cleary er mikill aðdáandi Stoker en kannaðist ekki við þessa sögu. Hann leitaði til sérfræðinga um verk Stoker sem könnuðust heldur ekki við að höfundurinn heimsfrægi hefði sent frá sér smásögu með þessum titli.
Bram Stoker var uppi á árunum 1847-1912 og var fæddur og uppalinn á Írlandi. Hans þekktasta verk er án efa skáldsagan Drakúla sem kom fyrst út 1897 en í henni leikur samnefndur greifi frá Transylvaníu, sem er jafn framt vampíra, stórt hlutverk. Drakúla hefur síðan komið fyrir í fjölmörgum skáldsögum, kvikmyndum, teiknimyndum og annars konar verkum eftir aðra höfunda, í ýmsum myndum.
Bram Stoker skrifaði fjölda annarra verka en ekki var vitað að smásagan Gibbet Hill væri þar á meðal þar til að Brian Cleary rakst á áðurnefnda auglýsingu þar sem minnst var á söguna.
Cleary þurfti ekki að gera mikla leit til að finna söguna í heild sinni en hún hafði verið birt í þessu sama dagblaði Dublin Daily Express í desember 1890.
Hann segist hafa orðið algjörlega forviða þegar hann fann söguna. Hann hafi helst langað að hrópa:
„Sjáið hvað ég fann.“
Hann hafi hins vegar haldið aftur af sér þar sem hann hafi jú verið á bókasafni en einnig verið svolítið feiminn við að láta vita af uppgötvun sinni þar sem hann hafi verið umkringdur atvinnufræðimönnum en hann sjálfur sé bara áhugamaður.
Cleary las söguna en sagði við sjálfan sig að hann gæti ekki annað en deilt þessari uppgötvun með heimsbyggðinni. Paul Murray sérfræðingur í verkum Bram Stoker staðfesti síðan að sagan væri sannarlega sköpunarverk Stoker.
Gibbet Hill er sögð vera sígild Stoker saga þar sem hryllingurinn er í fyrirrúmi. Hún gerist á Englandi þar sem þrír útlagar eru hengdir fyrir morð. Þrjú undarleg börn hitta mann nærri gröf hins myrta og líf mannsins breytist í kjölfar helgiathafnar sem framkvæmd er á staðnum.
Gibbet Hill birtist fyrst sjö árum fyrir útgáfu Drakúla. Sagan er sögð geta veitt innsýn inn í þróun Stoker sem höfundar hryllingssagna.
Sagan var lesin upp opinberlega í fyrsta sinn, í síðasta mánuði, á hátíð í Dublin sem tileinkuð er Bram Stoker og í þessum mánuði verður Gibbet Hill gefin út í myndskreyttri útgáfu.
Ágóði af sölu útgáfunnar mun renna í sjóð sem kenndur er við Charlotte Stoker, móður Bram, og styrkir rannsóknir á heyrnarleysi í nýburum. Svo vill einmitt til að Brian Cleary missti heyrn á öðru eyranu og hafði gengist undir kuðungsígræðslu. Í kjölfarið þurfti hann að fara í eftirmeðferð og hafði því meiri tíma til að grúska á Landsbókasafninu í Dublin sem endaði með að hann datt svo sannarlega í lukkupott grúskara.