„Ég heyrði hann öskra og sá einhvern hlaupa út í og þeim tókst að koma honum í land,“ hefur Hawaii News Now eftir David Basques. Hann sagði einnig að manninum hafi tekist að synda hálfa leið í land frá staðnum þar sem hákarlinn réðst á hann og þá hafi fólk komið honum til aðstoðar.
Í tilkynningu frá yfirvöldum kemur fram að hákarlinn hafi bitið hægri fótlegginn alveg af við hné.
Maðurinn var fluttur á sjúkrahús og er hann í lífshættu.