Stúlkan, sem er 14 ára, sat á bekk við Sandyland ströndina í Morecambe í Lancashire á Englandi síðdegis dag einn í september síðastliðnum. Þá settist Dean Marrioni, 34 ára, við hlið hennar. Hann ávarpaði hana og réðst síðan á hana og beitti kynferðislegu ofbeldi.
Stúlkan náði að hlaupa á brott en gerði smá hlé á hlaupunum til að taka farsímann sinn upp og taka mynd af Marroni. Hún lét lögreglunni myndina síðan í té.
Lögreglan segir að þetta snarræði hennar hafi orðið til þess að lögreglumenn gátu handtekið Marroni á heimili hans.
Metro segir að hann hafi verið dæmdur í fimm mánaða fangelsi í síðustu viku fyrir árásina á stúlkuna. Hann játaði sök. Nafn hans verður einnig á skrá yfir kynferðisbrotamenn um ókomna tíð.
Eftir dómsuppkvaðninguna sagði talskona lögreglunnar að það séu ánægjuleg tíðindi að Marroni hafi verið dæmdur í fangelsi og til að sæta öðrum úrræðum.
Marroni var dæmdur fyrir kynferðisbrot árið 2021 en þá voru það kona og þrjár stúlkur sem urðu fyrir barðinu á honum.