Janey Voyek frá Idaho mun líklega hugsa sig tvisvar um áður en hún fer aftur á blint stefnumót eftir vægast sagt ógnvekjandi reynslu. Hún fór á svokallað blint stefnumót með manni að nafni James Coolack nýlega. Það var bróðir hennar sem leiddi þau saman og fyrst taldi Janey að hún hefði dottið í lukkupottinn enda var James virkilega heillandi og bjó yfir ríkum persónutöfrum. Þetta breyttist þó í einni svipan þegar James afhjúpaði hver hann er í raun og veru og hvað hann hefur gert.
„Hann reiddist allt í einu og varð hálf klikkaður svo bara sagði hann mér hreint út að hann hefði myrt bróður sinn fyrir tveimur árum,“ sagði Janey í samtali við fjölmiðla. Janey hafði þarna samband við bróður sinn sem hafði jú heyrt James segja það sama. Þau hringdu því næst í lögregluna sem handtók James í kjölfarið. Þá kom á daginn að James hét í rauninni Kyle og hann var vissulega eftirlýstur fyrir morð. Hann er nú í haldi og bíður þess að vera framseldur til Houston í Texas til að svara til saka fyrir morðið á bróður sínum.
Janey segist fegin að hafa átt þátt í því að koma Kyle á bak við lás og slá. Það sé þó skuggalegt að hugsa til þess hvað hefði gerst ef Kyle hefði ekki játað. Hún bendir konum á að gæta sín við hvern þær tala og passa að hleypa nýjum vinum eða kunningjum ekki of snemma inn á heimilið.
„Hefði hann barið mig? Hefði hann ráðist á mig og kannski drepið mig?“