Bæði voru komin vel á áttræðisaldur þegar þau hurfu og vakti hvarf þeirra talsverða athygli á sínum tíma. Taldi lögregla á sínum að líklega hefði eitthvað saknæmt átt sér stað. Charles og Catherine voru ekkjufólk þegar þau kynntust og höfðu þau verið gift í nokkur ár.
NBC News greinir frá því að á dögunum hafi bifreið, 1978 árgerðin af Lincoln Continental, fundist á bólakafi í vatni í Georgíuríki. Hjónin óku einmitt slíkri bifreið þegar þau hurfu en inni í bílnum sem fannst voru líkamsleifar að minnsta kosti eins einstaklings.
Hjónin lögðu af stað frá Miami Beach þann 6. apríl 1980 og óku sem leið lá að Georgíuríki. Tveimur dögum síðar, þann 8. apríl, innrituðu þau sig á Holiday Inn-hótelið í Brunswick í Georgíu, en þann 11. apríl tilkynnti hótelstarfsmaður um hvarf þeirra. Fannst bíllinn í vatni skammt frá umræddu hóteli og er talið að bifreiðinni hafi verið ekið ofan í vatnið af slysni.
Eins og áður segir taldi lögregla taldi líklegt að eitthvað saknæmt hefði átt sér stað enda voru hjónin vel stödd fjárhagslega og var Catherine jafnan með dýra skartgripi á sér. Nú bendir allt til þess að svo hafi ekki verið en enn hefur þó ekki verið gefið upp hvort skartgripirnir dýru hafi fundist.