Það er auðvitað ekki neitt sérstaklega fögur sjón að sjá köngulóarvefi í krókum og kimum en köngulóarvefir eru virkur hluti af hreingerningarkerfi náttúrunnar.
t-Online segir að þegar köngulær spinna vefi sína, þá fái þeir ekki aðeins hlutverk skordýragildru, heldur verða þeir einnig söfnunarstaðir fyrir ryk og örsmáar agnir.
Haft er eftir Silvia Teich, hjá þýsku náttúruverndarsamtökunum, að köngulóarvefur inni á heimilinu geti fangað mýflugur, ávaxtaflugur og önnur smá skordýr sem eru fólki oft til ama.
Hún sagði að í vel loftræstu húsnæði, þar sem ekki sé lífrænt rusl, hafi köngulær ekki svo mikið að éta því þær lifi á skordýrum. Því sé hættan á að húsnæðið fyllist af köngulóm mjög lítil, svo lengi sem þrifum sé sinnt.
Í rýmum, sem eru sjaldan notuð eða loftræst, geta köngulær hins vegar séð sér leik á borði við að spinna vef. Ef hann fær að vera óáreittur þá safnar hann hratt í sig ögnum og myglusveppagróum. Þetta kann að virðast vera sóðalegt en yfirleitt stafar engin heilsufarshætta af þessu því myglusveppur á miklu erfiðara uppdráttar í köngulóarvef en á rökum yfirborðsflötum.
En það getur verið hættulegt ef köngulóarvefur er nærri hitagjöfum á borð við ljósaperur. Það getur haft eldhættu í för með sér og því er rétt að fjarlægja þá vefi.