Lögreglan fór strax á vettvang og á upptöku úr búkmyndavél eins lögreglumannanna sést Durham eiga í átökum við einstakling vopnaðan hnífi. Skömmu síðar skaut lögreglumaður Durham til bana.
Sky News skýrir frá þessu og segir að Durham hafi hringt í neyðarlínuna og tilkynnt um fólk sem væri að skjóta utan við heimili hans. Fjöldi annarra tilkynninga barst um skothríð á svæðinu.
Hann sagði neyðarverðinum síðan að einhverjir hefðu komist inn í húsið, bæði um fram- og afturdyrnar. Hann sagðist vera að læsa sig inni á baðherbergi.
Þegar lögreglumenn komu á vettvang heyrðu þeir öskur berast innan úr húsinu.
Einn lögreglumannanna sparkaði hurðinni upp og sá þá Durham í átökum við Alejandra Boudreaux, 31 árs. Lögreglumaðurinn skipaði þeim að sleppa hnífnum og tveimur sekúndum síðar skaut á fólkið og hæfði Durham.
Bæði Durham og Boudreaux féllu á gólfið og lögreglumaðurinn skaut fimm skotum til viðbótar á þau. Um þrjár sekúndur liðu á milli fyrsta og síðasta skotsins.