Bud og eiginkona hans, June, héldu frá heimili sínu í Marietta, norður af Atlanta, í átt að Telfair-sýslu þar sem bíllinn var sagður vera, en um var að ræða þriggja tíma akstur. Þegar þangað var komið voru hjónin aftur á móti rænd og skotin til bana og fundust lík þeirra við fáfarinn sveitaveg stuttu síðar.
Nokkrum dögum síðar var maður að nafni Ronnie Towns handtekinn grunaður um morðin. Nú þegar tæp tíu ár eru liðin frá þessum svívirðilega glæp hefur loksins verið kveðinn upp dómur yfir Ronnie sem er 38 ára gamall. Hlaut hann lífstíðardóm án möguleika á reynslulausn.
Komst hann að samkomulagi við saksóknara um að játa á sig morðin gegn því að ekki yrði farið fram á dauðarefsingu.
„Þetta hafa verið hrikalega löng tíu ár,“ sagði dómarinn í málinu þegar dómur var kveðinn upp í vikunni.
Í fréttum bandarískra fjölmiðla kemur fram að ný sönnunargögn í málinu hafi komið fram fyrr á árinu þegar poki fannst í vatni skammt frá morðstaðnum sem innihélt skotvopn, farsíma og persónuskilríki Runion-hjónanna. Styrkti það mjög málið gegn Ronnie.
Bud og June voru þekkt í sínu nærsamfélagi í Mariette en þau ráku meðal annars góðgerðasamtökin Bud‘s Bicycles sem gáfu meðal annars reiðhjól sem búið var að gera upp til fólks sem hafði lítið á milli handanna.