fbpx
Föstudagur 15.nóvember 2024
Pressan

Gekk inn í líkamsræktarstöð – Fannst látinn í sólbekk þremur sólarhringum síðar

Pressan
Föstudaginn 15. nóvember 2024 04:22

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á mánudaginn fannst Derek E. Sink, 39 ára, látinn í sólbekk í líkamsræktarstöð í milljónaborginni Indianapolis í Bandaríkjunum.

Hann gekk inn í Planet Fitness á föstudaginn og fór í sólbekk og þar virðist hann hafa legið í þrjá sólarhringa. Fjölskylda hans hafði samband við lögregluna á sunnudaginn og tilkynnti um hvarf hans.

Á mánudagsmorgun fundu gestir og starfsfólk líkamsræktarstöðvarinnar mikinn óþef leggja um húsakynnin og reyndust upptökin vera í sólbekknum þar sem Sink lá.

Fox News skýrir frá þessu og hefur eftir lögreglunni að unnið sé að rannsókn málsins og að eins og staðan sé núna sé ekki vitað hver dánarorsök Sink var.

Einn af gestunum, sem voru í líkamsræktarstöðinni á mánudaginn, sagðist í samtali við Fox News furða sig á að það sé hægt að liggja dáinn í sólbekk í þrjá sólarhringa án þess að finnast.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Mikil leit að manni sem myrti munk og særði þrjá presta í spænsku klaustri

Mikil leit að manni sem myrti munk og særði þrjá presta í spænsku klaustri
Pressan
Fyrir 4 dögum

Morgan var rænt 6 ára – Fjölskyldan beið 30 ár eftir svörum en enginn verður ákærður

Morgan var rænt 6 ára – Fjölskyldan beið 30 ár eftir svörum en enginn verður ákærður