Myndin fjallar um suðurafrískan ættbálk sem finnur Coca-Cola glerflösku sem datt úr flugvél. Ættbálkurinn telur að að þetta sé gjöf frá guðunum því flaskan kom af himni ofan.
N!xau Toma, sem leikur höfðingja ættbálksins, reynir að skila flöskunni til að koma á friði og ró því allir vilja komast yfir þennan undarlega hlut og það skapar deilur og óþægilegar aðstæður.
En þrátt fyrir að vera aðalleikari myndarinnar þá fékk þessi namibíski leikari aðeins 300 dollara fyrir framlag sitt fyrstu 10 tökudagana.
Jamie Uys, leikstjóri myndarinnar, sagðist hafa látið Toma fá 300 dollar eftir fyrstu 10 tökudagana en þar sem Toma hafi ekki skilið verðmæti seðlanna hafi hann kastað þeim út í loftið og þeir fokið í burtu.
Þegar tökum myndarinnar var lokið fékk Toma 100 dollara á mánuði og 20.000 dollarar voru lagðir inn á sérstakan reikning í hans nafni. Hann fékk einnig 12 kýr.
Toma lék í nokkrum kvikmyndum til viðbótar en sneri að lokum heim til Namibíu þar sem hann ræktaði maís, grasker og baunir. Hann lést í júní 2003, sextugur að aldri.