En flensan truflar samt sem áður daglegt líf fólks og þess utan er hætta á að fólk smiti aðra af henni. Það er því kannski engin furða að margir hafi velt fyrir sér hvort til sé vísindalega sönnuð aðferð til að stytta veikindi af völdum flensu?
Live Science fjallaði um þetta og ræddi við tvo sérfræðinga.
Timothy Brewer, prófessor í læknis- og faraldsfræði við UCLA, sagði að aðalaðferðin til að stytta veikindin sé að taka veirueyðandi lyf. Þeirra á meðal eru Tamiflu, Relenza, Rapivab og Xofluza.
Sumir grípa til þess ráðst að taka sink, C-vítamín eða önnur fæðubótarefni í von um að draga úr sjúkdómseinkennunum en enn sem komið er liggja ekki nægar vísindalegar sannanir fyrir um að þetta virki að sögn Brewer.
Richard Zimmerman, prófessor í heimilislækningum og klínískri faraldsfræði, sagði að þau lyf sem eru á markaðnum, sem geta tekist á við sjúkdómseinkenni, ráðist ekki að rót sýkingarinnar til að stytta veikindatímann. Hann sagði að venjulegar verkjatöflur geti hjálpað til við að draga úr sjúkdómseinkennunum
Hann benti einnig á að hunang sé gott til að takast á við hósta en hafa þurfi í huga að börn yngri en eins árs megi ekki fá hunang.
Hvað varðar bólusetningu gegn inflúensu þá styttir hún ekki endilega veikindin ef fólk er svo óheppið að smitast en hún getur gert sjúkdómseinkennin vægari.