Sky News segir að Moore hafi verið með augun lokuð og höfuð hans hafi beinst að loftinu þegar aftakan hófst. Lögmaður hans til 10 ára grét og Moore lést innan tíu mínútna.
Hann var dæmdur til dauða fyrir að hafa skotið verslunarmanninn James Mahoney til bana í verslun í Spartanburg í september 1999.
Moore var óvopnaður en náði byssu, sem Mahoney beindi að honum, af honum og skaut hann í bringuna. Mahoney skaut Moore í handlegginn með annarri skammbyssu á sama tíma.
Lögmaður Moore segir að til deilna hafi komið á milli Moore og Mahoney því það hafi vantað 12 sent upp á greiðslu Moore fyrir það sem hann var að kaupa.
Hann tók 1.400 dollara úr sjóðvélinni áður en hann yfirgaf verslunina.
Lögmenn Moore fóru fram á það við Henry McMaster, ríkisstjóra, að hann breytti dauðadómnum í ævilangt fangelsi vegna góðrar hegðunar Moore í fangelsinu og atorku hans við að kenna öðrum föngum. Þeir héldu því einnig fram að það væri óréttlátt að taka mann af lífi fyrir eitthvað sem mætti telja sjálfsvörn. Hann hafi komið óvopnaður inn í verslunina og hafi ekki haft í hyggju að drepa neinn. Þess utan væri hann eini svarti maðurinn á dauðaganginum, sem hafi verið sakfelldur af kviðdómi sem enginn svartur maður sat í.